Austurnet

Markmið Austurnets er að draga saman krafta sem flestra aðila í upplýsingatæknigeiranum á Austurlandi og nýta samlegðaráhrifin sem af því skapast að búa til regnhlífasamtök.

Með þessu á einyrkjum og smáfyrirtækjum að vera kleift að starfa á eigin forsendum en um leið njóta stærðarhagkvæmni.

Austurnet hefur verktaka á sýnum snærum sem búa yfir fjölbreyttri menntun og reynslu úr mörgum geirum upplýsingatækninnar. Má þar nefna:

  • Hugbúnaðargerð
  • Vefsíðugerð
  • Grafísk hönnun
  • Viðskiptafræði
  • Kennsla
  • Markaðsráðgjöf
  • Bókasafnsfræði
  • Skjalastjórnun
  • Verkefnisstjórn

Austurnet leggur áherslu á að fá sem flesta til liðs við sig, til að geta aukið fjölbreytni þjónustu.

Forritun

Forritunarverkefni eru unnin í samstarfi við AN Lausnir ehf. >>

Grafík

Tökum að okkur verkefni er tengjast grafískri hönnun. >>

Kennsla

Kennum ýmiskonar námskeið tengd upplýsingatækni. >>

Vefsíður

Hýsum og smíðum vefsíður. >>

Kúlur

Tökum að okkur að leiða hverskonar verkefni í kúlum. >>

Tölvur

Við sinnum alhliða viðgerðarþjónustu á tölvum. >>