Námskeið og kennsla

Austurnet hefur tekið að sér kennslu á ýmis konar námskeiðum tengdum tölvu- og upplýsingatækni.  Samstarf okkar við Þekkingarnet Austurlands er ein af meginstoðum netsins.  

Kennarar eru margir, en Þórunn Hálfdanardóttir hefur umsjón með þessu verkefni.

Kennsla fyrir ÞNA

Austurnet hefur um 3ja ára skeið útvegað kennara á flestöll tölvunámskeið sem Þekkingarnet Austurlands hefur boðið upp á.  Einnig hafa verktakar Austurnets tekið þátt í kennslu á vegum Menntaskólans á Egilsstöðum, Vinnumálastofnunar og Starfsendurhæfingar Austurlands

Námskeiðin hafa verið haldin allt frá Hornafirði til Vopnafjarðar, en flest þó hér á Egilsstöðum og svo á Reyðarfirði.  Viðfangsefnin eru mörg, allt frá almennri tölvukennslu fyrir byrjendur upp í flókin Excel-námskeið fyrir stjórnendur fyrirtækja.

Forritun

Forritunarverkefni eru unnin í samstarfi við AN Lausnir ehf. >>

Grafík

Tökum að okkur verkefni er tengjast grafískri hönnun. >>

Kennsla

Kennum ýmiskonar námskeið tengd upplýsingatækni. >>

Vefsíður

Hýsum og smíðum vefsíður. >>

Kúlur

Tökum að okkur að leiða hverskonar verkefni í kúlum. >>

Tölvur

Við sinnum alhliða viðgerðarþjónustu á tölvum. >>