Austurnet hefur um 3ja ára skeið útvegað kennara á flestöll tölvunámskeið sem Þekkingarnet Austurlands hefur boðið upp á. Einnig hafa verktakar Austurnets tekið þátt í kennslu á vegum Menntaskólans á Egilsstöðum, Vinnumálastofnunar og Starfsendurhæfingar Austurlands.
Námskeiðin hafa verið haldin allt frá Hornafirði til Vopnafjarðar, en flest þó hér á Egilsstöðum og svo á Reyðarfirði. Viðfangsefnin eru mörg, allt frá almennri tölvukennslu fyrir byrjendur upp í flókin Excel-námskeið fyrir stjórnendur fyrirtækja.