Verkefni

Austurnet veitir margvíslega þjónustu er varðar upplýsingatækni.  Við leggjum okkur fram um að veita persónulega þjónustu á viðráðanlegu verði.

  • Forritun - sérsmíði hugbúnaðar
  • Hönnun og uppsetning vefsíðna
  • Námskeiðshald
  • Grafísk hönnun
  • Auglýsingagerð
  • Ljósmyndun og myndvinnsla
  • Forritun ( 1 Efni )

    Austurnet hefur innan sinna vébanda 5 tölvunarfræðinga og 2 kerfisfræðinga, sem öll hafa reynslu af forritun. 

  • Grafísk hönnun ( 1 Efni )

    Grafísk hönnun, bæði í tengslum við vefsíður, annan hugbúnað og ekki síst prentmiðla, er allstór hlut af okkar verkefnum.  Unnar Erlingsson er okkar aðalhönnuður og hefur umsjón með þessum verkefnum.

  • Verkefnastjórnun ( 1 Efni )

    Austurnet hefur tekið að sér að hýsa nokkur sprotaverkefni og sjá um að stýra þeim í gegnum fyrstu skrefin í átt til sjálfstæðis.  Við köllum þetta "Kúlur" og á vefnum www.kula.is má sjá hvernig þetta fer fram.  Umsjón með Kúlunum hefur Tjörvi Hrafnkelsson.

  • Námskeið og kennsla ( 1 Efni )

    Austurnet hefur tekið að sér kennslu á ýmis konar námskeiðum tengdum tölvu- og upplýsingatækni.  Samstarf okkar við Þekkingarnet Austurlands er ein af meginstoðum netsins.  

    Kennarar eru margir, en Þórunn Hálfdanardóttir hefur umsjón með þessu verkefni.

  • Vefhýsing og tölvupóstur ( 1 Efni )

     

    Austurnet býður viðskiptavinum sínum hýsingu á vefsíðum og tölvupósti í samstarfi við www.go.is .   Við erum ekki með hýsingaraðstöðu sjálf, en með þessu móti getum við veitt okkar viðskiptavinum heildstæða og persónulega þjónustu. 

    Umsjón með hýsingu hefur Þórunn Hálfdanardóttir. 

  • Tölvuþjónusta ( 1 Efni )

    Almenn tölvuþjónusta, viðgerðir, uppsetningar, vírushreinsanir og uppfærslur eru nýr þáttur í starfi Austurnets ehf.  Þeir sem ábyrgð bera á þessari starfsemi eru Garðar Valur Hallfreðsson og Sigurður Páll Behrend, en þeir hafa verið verktakar hjá Austurneti um nokkurt skeið.  Báðir eru með BS-próf í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík og með mikla reynslu í þessum geira.

    Árni Björnsson hefur um allnokkurt skeið sinnt þjónustu við innanhússkerfi nokkurra fyrirtækja og mun halda því áfram með sama sniði.

Forritun

Forritunarverkefni eru unnin í samstarfi við AN Lausnir ehf. >>

Grafík

Tökum að okkur verkefni er tengjast grafískri hönnun. >>

Kennsla

Kennum ýmiskonar námskeið tengd upplýsingatækni. >>

Vefsíður

Hýsum og smíðum vefsíður. >>

Kúlur

Tökum að okkur að leiða hverskonar verkefni í kúlum. >>

Tölvur

Við sinnum alhliða viðgerðarþjónustu á tölvum. >>