Tölvunarfræðingur
700 Fellabæ
Er Hugbúnaðarsérfræðingur hjá AN Lausnum, auk þess að sinna þjónustu fyrir AN Tölvuþjónustu sem hann hafði frumkvæði um að koma á fót. Er einn af stofnendum AN Lausna og situr þar í varastjórn.
Menntun
2007 – 2010 Háskólinn í Reykjavík
BSc gráða í tölvunarfræði.
1993 – 2000 Menntaskólinn á Egilsstöðum
Stúdentspróf á náttúrufræðibraut.
Starfsreynsla
2008 – 2009 Skyggnir
Tæknimaður
Starfið félst aðallega í hýsingu og rekstri tölvukerfa. Ég sinnti þessu starfi í tvö sumur milli þess sem ég var ekki í háskóla, en ég var í háskólanámi á þessu tímabili.
2005 – 2008 Landsbanki Íslands
Söluráðgjafi
Starfið fólst í því að leiðbeina fólki um bankakerfið, kynna lausnir og hagræðingu í fjármálum, upplýsa fólk um lífeyrismál og sparnaði ásamt tryggingamálum og persónutryggingum.
2004 – 2005 NetX ehf
Tölvuviðgerðarmaður
Starfið fólst í vélbúnaðarvinnu, uppsetningu stýrikerfa, vírushreinsanir, og almenna ráðgjöf við tölvunotkun og tölvukaup. Vann í lausamennsku samhliða öðru starfi.
1997 – 2005 Flugfélag Íslands
Flugvallastarfsmaður
Ég sinnti eftirfarandi störfum á Egilsstaðaflugvelli, bókun farmiða, innritun farþega, starfsmaður á „rampi“ (hlaðmaður), eldsneytisafgreiðsla (Shell), afgreiðsla bílaleigubíla (Hertz), einnig sjá um þrif á bílum bílaleigunnar, afstemming og peningamál gagnvart sjóði, og undir það síðasta var ég vaktstjóri hjá FÍ á Egilsstaðaflugvelli.
Námskeið & reynsla
- 1995 – skiptinemi til BNA í 1 ár, Decatur IL, „Class of ´96, Stephen Decatur High School“
- 2000 – Þýskunám við Hermann-Hesse-Kolleg, Horb am Neckar í S-Þýskalandi
- 2006 – Dreamweaver námskeið í heimasíðugerð við Tölvu- og Verkfræðiþjónustu í Reykjavík
- 2007 – Photoshop námskeið í Þekkingarneti Austurlands á Egilsstöðum